Verslunin er lokuð vegna flutninga
Fákafeni 9, 108 Reykjavík
-

1.200 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Nikita chunky - fullorðinspeysa

Afapeysan er prjónuð ofan frá og niður. Fyrst er hún prjónuð fram og til baka (hneppt í hálsmáli og niður á berustykkið) og svo tengd í hring. Útaukning er laskaútaukning.
Peysan er víð með víðum ermum og stroffið á ermum er einnig vítt. Hægt er að þrengja stroff með því að fækka lykkjum áður en stroffið er prjónað. Peysan er með klaufum á hliðum og er síðari að aftan.

Þessi uppskrift er snúin.
Gæti rifið í hjá þeim reynsluminnstu, en þeir sem vanari eru rúlla henni upp án þess að blikna.

Efni
1 þráður af Special Aran With Wool + 1 þráður af Mohair (Angel by Permin EÐA Silk Mohair frá Lana Gatto)

Í staðinn fyrir Special Aran er hægt að nota t.d. Katia Merino Aran, Katia Merino Tweed, Nuovo Irlanda eða Maxi Soft + þráð af mohair.

Einnig hægt að nota 1 þráð af Patagonia frá Lana Gatto eða Anice frá Lana Gatto ef þið viljið ekki hafa mohair með. Passa að skoða metralengd þegar annað en uppgefið garn er notað.

Stærð Aran Mohair
XS 400 g (816 m) 75 g (630 m)
S 450 g (918 m) 100 g (840 m)
M 500 g (1020 m) 100 g (840 m)
L 600 g (1224 m) 125 g (1050 m)
XL 700 g (1428 m) 150 g (1260 m)
XXL 800 g (1632 m) 175 g (1470 m)


Það sem þarf
- Hringprjónar nr. 7 (40, 60 og 100/120 cm langa)
- Nál til frágangs
- Prjónamerki
- Tölur

Lengd bolur, frá handvegi (mælt að framan)
XS: 37 cm
S: 38 cm
M: 39 cm
L: 41 cm
XL: 42 cm
2XL: 44 cm

Ummál bolur
XS: 98 cm
S: 105 cm
M: 111 cm
L: 117 cm
XL: 124 cm
2XL: 130 cm

Lengd ermar, frá handvegi
XS: 35 cm
S: 36 cm
M: 37 cm
L: 38 cm
XL: 40 cm
2XL: 42 cm

Ummál ermar
XS: 36 cm
S: 38,5 cm
M: 41 cm
L: 44 cm
XL: 46,5 cm
2XL: 50 cm

Prjónfestan í þessari peysu er sú að 14 lykkjur á prjóna nr. 7 gera 10 cm.

sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista