Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

1.200 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Ava dömupeysa

Þessi peysa er prjónuð ofan frá og niður, í hring, með strúktúr mynstri.

Þessi uppskrift er snúin: Uppskrift sem reynsluboltar rúlla upp. Nýliðar ættu hins vegar að eiga Hauk í horni þegar upp koma spurningar.  

 #avapeysa 

Efni
Einn þráður af Mitu frá Rauma og einn þráður af silk mohair t.d. soft silk mohair frá Knitting for Olive.

Einnig er hægt að velja að nota:

  • Smart frá sandnes og mohair
  • Katia Merino 100% og mohair
  • Drops Merino Extra Fine og mohair

 og fleiri tegundir sem hafa sömu/svipaða prjónfestu (22l=10cm). 

Stærðir og magn af garni

Stærð MiTu frá Rauma Mohair
XS 300 g (600 m) 75 g
S 350 g (700 m) 100 g
M 400 g (800 m) 100 g
L 450 g (900 m) 125 g
XL 500 g (1000 m) 125 g


Það sem þarf

• Hringprjónn nr. 5 (40 cm fyrir hálsmál)
• Hringprjónar nr. 5.5 (40 cm, 80 og 100/120 cm langir)
• Sokkaprjónar nr. 5.5 (fyrir stroff á ermum ef þarf)
• Nál til frágangs
• Prjónamerki – 8 hringlaga stykki sem komast upp á prjónana og 1 hringlaga merki til að merkja upphaf umferðar


Ummál bolur
XS: 102 cm
S: 106,5 cm
M: 111 cm
L: 115,5 cm
XL: 124,5 cm

ATH að ummálið er af peysunni sjálfri.

Prjónfestan í þessari peysu er sú að 18 lykkjur á prjóna nr. 5.5 gera 10 cm með því að nota Mitu og mohair saman.

sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista