My Pearl hálsmen er fallegur en jafnframt nytsamlegur skartgripur fyrir alla prjónara!
My Pearl er eftir hönnuðinn Önnu Silfu Þorsteinsdóttur, sem hannar skartgripi undir merkinu Silfa. Hún sækir innblástur í arfleifð íslenskrar þjóðar með áherslu á skart og mynstur liðinna alda auk tengingar við norræna goðaheima.
Keðjan er 53 cm og getur einnig verið notuð sem framlenging á aðrar keðjur í My Pearl línunni.
Hálsmenið er gert úr háslípuðu læknastáli til að koma í veg fyrir ofnæmi.
Kemur í litlu veski sem er með fallegri perluáferð úr vegan leðri.