Harðangurs- og klaustursaumur í hefðbundnum stíl (e. traditional hardanger) sést ekki oft utan Noregs, en hann er nokkuð frábrugðinn harðangurssaum nútímans. Þessi aðferð var áður fyrr notuð í skyrtur og svuntur við norska þjóðbúninga við Harðangursfjörð.
Yvette Stanton er sérfræðingur í hvítsaumsaðferðum og í þessari bók gefur hún góðar og skýrar leiðbeiningar fyrir harðangur- og klaustursaum. Í bókinni eru 10 fjölbreytt útsaumsverkefni, þ.á.m. blússa með útsaumuðum ermum og kraga, dúkar, skraut fyrir heimilið og aðrar smávörur sem eru tilvaldar gjafir. Í bókinni má einnig finna upplýsingar um sögu og menningarlegt gildi þessarar útsaumsaðferðar.
Tungumál: enska
Aðferð: hefðbundinn harðangurs- og klaustursaumur
Blaðsíður: 160
Útgáfuár: 2016
Gerð: mjúkspjalda
Stærð: 195 x 275 mm