Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Uppskriftin er á íslensku.
70's peysa
Peysan er prjónuð ofan frá og niður og í hring, með sléttu prjóni og laskútaukningu.
Þessi uppskrift er snúin: Getur rifið í hjá þeim reynsluminnstu en þeir sem eru vanari rúlla henni upp án þess að blikna. Ef þú kannt styttar umferðir verður þetta hins vegar ekkert mál.
Á myndunum sést einnig húfa í stíl við peysuna. Hægt er að kaupa báðar uppskriftirnar saman í setti með því að smella hér.
#70'sett
Efni
Katia Merino Sport eða Maxi Soft frá Lana Gatto.
Einnig hægt að nota Katia Merino Aran, Nuovo Irlanda frá Lana Gatto eða Katia Merino Tweed.
Stærðir | Aðallitur | Aukalitir |
6-12 mán | 200-250 g | 1 dokka af hverjum lit |
1-2 ára | 200-250 g | 1 dokka af hverjum lit |
2-4 ára | 300 g | 1 dokka af hverjum lit |
4-6 ára | 300 g | 1 dokka af hverjum lit |
6-8 ára | 350 g | 1 dokka af hverjum lit |
8-10 ára | 350 g | 1 dokka af hverjum lit |
Það sem þarf
- Hringprjónn nr. 5 og 5.5 (40 og 60/80 cm langir)
- Sokkaprjónar nr. 5 og 5.5
- Nál til frágangs
- Prjónamerki
Lengd bolur, frá handvegi
6-12 mán: 15 cm
1-2 ára: 17 cm
2-4 ára: 22 cm
4-6 ára: 28 cm
6-8 ára: 34 cm
8-10 ára: 38 cm
Ummál bolur
6-12 mán: 54 cm
1-2 ára: 60 cm
2-4 ára: 67 cm
4-6 ára: 71 cm
6-8 ára: 79 cm
8-10 ára: 83 cm
Lengd ermi, frá handvegi
6-12 mán: 16 cm
1-2 ára: 19 cm
2-4 ára: 23 cm
4-6 ára: 29 cm
6-8 ára: 35 cm
8-10 ára: 40 cm
Ummál ermi
6-12 mán: 19 cm
1-2 ára: 20 cm
2-4 ára: 22.5 cm
4-6 ára: 25 cm
6-8 ára: 26.5 cm
8-10 ára: 29 cm
Prjónfestan í þessari peysu er sú að 18 lykkjur á prjóna nr. 5,5 gera 10 cm með því að nota Merino Sport frá Katia.