Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Uppskriftin er á íslensku.
ÆVI barnapeysa
Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fram og til baka. Gleðin við að prjóna ofan frá og niður er m.a. sú að maður stjórnar sídd á bol og ermum betur.
Garn
Katia Merino Sport
Stærðir og magn af garni
2-4 ára: 300 grömm
4-6 ára: 350 grömm
6-8 ára: 350-400 grömm
8-10 ára: 450 grömm
10-12 ára: 450-500 grömm
Það sem þarf
- hringprjónar nr. 5,5 - 6 (80 sm)
- sokkaprjónar nr. 5,5 - 6
- nál til frágangs
- prjónamerki
- tölur (mæli með 20 mm)
Prjónfestan í þessari peysu er sú að 18 lykkjur á prjóna nr. 5,5 - 6 gera 10 sm.
Mál
Lengd á bol, frá handvegi með stroffi
2-4 ára: 23 sm
4-6 ára: 27 sm
6-8 ára: 30 sm
8-10 ára: 33 sm
10-12 ára: 36 sm
Ummál á bol
2-4 ára: 70 sm
4-6 ára: 72 sm
6-8 ára: 75 sm
8-10 ára: 82 sm
10-12 ára: 87 sm
Lengd á ermum, frá handvegi með stroffi
2-4 ára: 23 sm
4-6 ára: 27 sm
6-8 ára: 30 sm
8-10 ára: 37 sm
10-12 ára: 40 sm
Ummál á ermum
2-4 ára: 23 sm
4-6 ára: 25 sm
6-8 ára: 26 sm
8-10 ára: 28 sm
10-12 ára: 30 sm