Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Uppskriftin er á íslensku.
Agnar jólahúfa
Agnar jólahúfa er prjónuð í hring.
Efni
Katia Merino 100%
Stærðir og ummál húfu:
0-6 mánaða: 31 sm
6-12 mánaða: 34 sm
1-2 ára: 38 sm
2-4 ára: 42
4-6 ára: 43 sm
6-10 ára: 46 sm
Varðandi ummál á húfu þá er það ekki sama og ummál á höfði. Ef barn er með ummál höfuðs ca 34-38 sm þá myndi ég taka stærð 0-6 mánaða.
Það sem þarf:
- 50, 50, 100, 100, 100, 150 gr af garni
- hringprjónn nr.3.5 og nr. 4 (40 sm)
- sokkaprjónar nr. 4
- nál til frágangs
- prjónamerki
- dúskur til skrauts (má sleppa)
Prjónfesta
24 lykkjur á prjóna nr. 4 = 10 sm