Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Uppskriftin er á íslensku.
ASKJA barnapeysa
Peysan er prjónuð fram og til baka, neðan frá og upp. Mynstur er prjónað sitthvoru megin við hnappalista en slétt að aftan. Ermar eru prjónaðar í hring.
Stærðir | Garn |
3-6 mánaða | 150 gr. |
6-12 mánaða | 150 gr. |
1-2 ára | 200 gr. |
2-4 ára | 250 gr. |
4-6 ára | 300 gr. |
6-8 ára | 350 gr. |
8-10 ára | 400 gr. |
Athugið að um áætlað magn af garni er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf.
GARN
Ég hef notað bæði Sandnes Smart og Dale Falk en hægt er að nota allt garn sem hentar prjónfestunni. Scout og Bébé Soft Washhentar einnig í þessa uppskrift og fæst í vefverslun MeMe Knitting.
ÞAÐ SEM ÞARF
- 3,0 mm hringprjón
- 3,5 mm hringprjón
- 3,5 mm sokkaprjóna
- Prjónamerki
- Nál fyrir frágang
- Tölur
PRJÓNFESTA
10 cm = 22 lykkjur sléttprjón á 3,5 mm prjóna.