Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
ÁTTAVILLT - barnapeysa
Peysan er prjónuð ofan frá og niður, í hring.
Mynsturbekkur er í berustykki þar sem aukið er út samkvæmt mynsturmynd.
Efni
Katia Merino 100%
Stærð | Aðallitur | Aukalitur 1 | Aukalitur 1 | Aukalitur 1 |
6-12m | 200 gr | 50 gr | 50 gr | 50 gr |
1-2 ára | 200 gr | 50 gr | 50 gr | 50 gr |
2-4 ára | 250 gr | 50 gr | 50 gr | 50 gr |
4-6 ára | 300 gr | 50 gr | 50 gr | 50 gr |
6-8 ára | 400 gr | 50 gr | 50 gr | 50 gr |
Það sem þarf
- hringprjónar nr. 4 (40 sm og 60/80 sm langir)
- sokkaprjónar nr. 4 (fyrir ermar)
- prjónamerki til að krækja í (úrtaka í ermum)
- nál til frágangs
Lengd á bol, frá handvegi, með stroffi
6-12 mánaða: 19 sm
1-2 ára: 22 sm
2-4 ára: 25 sm
4-6 ára: 30 sm
6-8 ára: 35 sm
8-10 ára: 38 sm
Ummál á bol
6-12 mánaða: 60 sm
1-2 ára: 64 sm
2-4 ára: 67 sm
4-6 ára: 70 sm
6-8 ára: 75 sm
8-10 ára: 80 sm
Lengd á ermum frá handvegi, með stroffi
6-12 mánaða: 18sm
1-2 ára: 21 sm
2-4 ára: 23 sm
4-6 ára: 29 sm
6-8 ára: 34 sm
8-10 ára: 37 sm
Ummál á ermum
6-12 mánaða: 19 sm
1-2 ára: 20 sm
2-4 ára: 21 sm
4-6 ára: 22 sm
6-8 ára: 23 sm
8-10 ára: 24 sm
Prjónfestan í þessari peysu er sú að 23 lykkjur á prjóna nr. 4 gera 10 sm með því að nota Merino 100% frá Katia.