Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

Dúlludúskur húfa - barnauppskrift

850 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Uppskriftin er á íslensku.

Dúlludúskur barnahúfa

Dúlludúskur barnahúfa er prjónuð neðan frá og upp, í hring, með stroffprjóni.
Eins og sést á myndunum er hægt að gera húfuna með eða án eyrna og banda, og með eða án dúska - ykkar er valið!

Efni
Super Soft frá Lana Gatto (125 m/50 g)
Einnig hægt að nota Merinocot eða Feeling frá Lana Gatto eða Merino 100% frá Katia.

Stærðir Garnmagn
Nýburi 100 g - 250 m
3-6 mán 100 g - 250 m
6-12 mán 100 g - 250 m
1-2 ára 150 g - 375 m
2-4 ára 150 g - 375 m
4-8 ára 150 g - 375 m


Það sem þarf

- Hringprjónn nr. 3.5 (30/40 cm langur)
- Sokkaprjónar nr. 3.5
- Nál til frágangs
- Prjónamerki
- Tól til að búa til dúska

Ummál
Nýburi: 30 cm
3-6 mán: 30 cm
6-12 mán: 33,5 cm
1-2 ára: 37 cm
2-4 ára : 37 cm
4-8 ára : 40 cm
Ummálið á húfunni er minna en gengur og gerist en ástæðan er sú að bæði garnið og mynstrið gefur mikinn slaka.

Prjónfesta
26 lykkjur = 10 cm í sléttu prjóni
32 lykkjur = 10 cm í stroffprjóni

 

sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista