Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Frost mohair fullorðins
Peysan er prjónuð ofan frá og niður, í hring. Mynsturbekkur er í berustykki þar sem aukið er út samkvæmt mynsturmynd aftast í uppskrift.
Efni
Special Aran with Wool og Angel by Permin eða Silk Mohair frá Lana Gatto.
Einnig hægt að nota
Katia Merino Aran eða Katia Merino Sport eða Nuovo Irlanda eða Maxi Soft frá Lana Gatto og 50 Shades of Mohair.
Stærð | Aran aðallitur | Aran mynsturlitur | Mohair aðallitur | Mohair mynsturlitur |
XXS | 350 g | 100 g | 75 g | 25 g |
XS | 400 g | 100 g | 100 g | 25 g |
S | 400 g | 150 g | 100 g | 50 g |
M | 400 g | 150 g | 100 g | 50 g |
L | 500 g | 200 g | 125 g | 50 g |
XL | 600 g | 200 g | 125 g | 50 g |
XXL | 700 g | 200 g | 125 g | 50 g |
Það sem þarf
- Hringprjónar nr. 7 (40, 80 og 100/120 cm)
- Nál til frágangs
- Prjónamerki
Mál
Lengd á bol, frá handvegi, með stroffi
XXS: 34 cm
XS: 36 cm
S: 38 cm
M: 40 cm
L: 42 cm
XL: 44 cm
XXL: 46 cm
Ummál á bol
XXS: 100 cm
XS: 105 cm
S: 110 cm
M: 115 cm
L: 123 cm
XL: 130 cm
XXL: 135 cm
Lengd á ermum frá handvegi, með stroffi
XXS: 35 cm
XS: 36 cm
S: 37 cm
M: 39 cm
L: 41 cm
XL: 43 cm
XXL: 44 cm
Ummál á ermum
XXS: 30cm
XS: 30 cm
S: 31 cm
M: 34 cm
L: 37 cm
XL: 40 cm
XXL: 44 cm
Prjónfestan í þessari peysu er sú að 14 lykkjur á prjóna nr. 7 gera 10 cm með því að nota Special Aran og mohair.