Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Uppskriftin er á íslensku.
Húfa og stuttbuxur - fyrir litla bróður
HÚFA
Húfan hans litla bróður er prjónuð neðan frá og upp. Byrjað er á snúru og eyrum, það er tengt í hring með auka uppfiti og eftir það er húfan prjónuð í hring.
Efni:
Katia Merino 100% frá Katia.
Stærðir og ummál húfu:
0-3 mánaða: 30 sm
3-6 mánaða: 34 sm
6-9 mánaða: 36 sm
9-12 mánaða: 40 sm
12-18 mánaða: 43 sm
18-24 mánaða: 45 sm
Það sem þarf:
- 25, 35, 40, 50, 70, 80 gr af garni
- sokkaprjónar nr. 3 og nr. 3,5 - 4
- hringprjónn nr. 3,5 - 4
- nál til frágangs
- dúskur (þarf ekki)
Prjónfesta
24 lykkjur á prj. nr. 3.5 - 4 = 10 sm
BUXUR
Buxurnar hans litla bróður eru prjónaðar ofan frá og niður.
Efni:
Katia Merino 100% frá Katia.
Stærðir og ummál:
0-3 mánaða: 40 sm
3-6 mánaða: 43 sm
6-9 mánaða: 47 sm
9-12 mánaða: 51 sm
12-18 mánaða: 53 sm
18-24 mánaða: 55 sm
Það sem þarf:
- 50, 70, 90, 90, 100, 100 gr af garni
- sokkaprjónar nr. 3,5 - 4
- hringprjónn nr. 3,5 - 4
- nál til frágangs
- prjónamerki
- 2 til 3 tölur (eftir smekk)
Prjónfesta
24 lykkjur á prj. nr. 3.5 - 4 = 10 sm