Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Þessi uppskrift er á íslensku.
Gustur herrapeysa er prjónuð að ofan frá og niður svo ekkert þarf að sauma saman. Þú byrjar sem sagt að prjóna stroff í hálsmáli, síðan berustykkið, svo bolinn og að lokum ermarnar. Peysan er prjónuð með tvöföldu perluprjóni frá toppi berustykkis alla leið niður. Allt stroff í peysunni er 1x1 stroff. Mynstrið heldur lögun sinni í gegnum alla flíkina.
STÆRÐIR & MÁL
Gustur herrapeysa er hönnuð með það í huga að hafa u.þ.b. 5-10 cm slaka. Ummálið er gefið upp sem ummál peysunnar. Því mætti segja að ef þú mælir ummálið yfir brjóstkassann 100 cm skaltu prjóna stærð M (108 cm).
Stærðirnar XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL eru hannaðar til að passa fyrir brjóstmál 85-95 (95-100) 100-104 (104-110) 110-114 (114-118) 118-125 cm
Stærðir: XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL
Ummál peysu: 97 (104) 108 (114) 118 (123) 129
Lengd peysu: 58 (61) 64 (66) 67 (69) 71
Prjónfesta: 19 lykkjur x 32 umferðir = 10 x 10 cm í sléttu prjóni á prjóna nr 5
Prjónar: 5 mm og 4 mm, 40, 80 og/eða 100 cm hringprjónar.
Tillaga að garni:
#1: 1 þráður 550 (600) 600 (650) 700 (750) 800 g Alpakka Ull frá Sandnes Garn (50g = 100m)
#2: 1 þráður 550 (600) 600 (650) 700 (750) 800 g Léttlopi frá Lopa (50g = 100m)
Erfiðleikastig: 2 af 5.
Hentar vel byrjendum í prjóni sem vilja prufa mynsturprjón!
Peysan á myndinni er prjónuð úr Alpakka Ull (9573 - mosagrænn).
Myndbönd notuð í þessari uppskrift: