Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

Haustlægð barnapeysa - uppskrift

1.200 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Haustlægð barnapeysa

Peysan er prjónuð ofan frá og niður og í hring, með sléttu prjóni og laskaútaukningu.
Peysan er prjónuð með tvíbandaprjóni
- einn þráður af Feeling frá Lana Gatto
- einn þráður af mohairi, annað hvort Angel frá Permin eða Silk Mohair frá Lana Gatto. 

Stærðir og magn af garni

Stærð Feeling Mohair
6-12 mán 150 g 50 g
1-2 ára 150 g 50 g
2-4 ára 150 g 50 g
4-6 ára 200 g 50 g
6-8 ára 250 g 75 g
8-10 ára 300 g 75 g 


Það sem þarf
- Hringprjónar nr. 5 (40 og 60/80 sm langir fyrir hálsmál og stroff á bol)
- Hringprjónar nr. 5.5 (40 og 60/80 sm langir)
- Sokkaprjónar nr. 5.5 
- Sokkaprjónar nr. 5 (fyrir stroff á ermum)
- Nál til frágangs
- Prjónamerki

Lengd á bol, frá handvegi, með stroffi
6-12 mán: 18 cm
1-2 ára: 20 cm
2-4 ára: 23 cm
4-6 ára: 26 cm
6-8 ára: 29 cm
8-10 ára: 33 cm

Ummál á bol
6-12 mán: 62 cm
1-2 ára: 76 cm
2-4 ára: 73 cm
4-6 ára: 73 cm
6-8 ára: 82 cm
8-10 ára: 91 cm

Lengd á ermum frá handvegi, með stroffi
6-12 mán: 16 cm
1-2 ára: 18 cm
2-4 ára: 20 cm
4-6 ára: 23 cm
6-8 ára: 26 cm
8-10 ára: 30 cm

Ummál á ermum
6-12 mán: 21 cm
1-2 ára: 22 cm
2-4 ára: 23 cm
4-6 ára: 24 cm
6-8 ára: 28 cm
8-10 ára: 31 cm

Prjónfestan í þessari peysu er sú að 18 lykkjur á prjóna nr. 5,5 gera 10 sm með því að nota einn þráð af Feeling og einn þráð af mohair. 

 

sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista