Hør Organic er úr 100% lífrænum hör og það er hægt að nota það eitt og sér, einfalt eða tvöfalt, eða með öðru garni. Hör er frábær í sumarflíkur. Hann hentar vel fyrir þá sem þola ekki ull og er einnig grænkeravænn.
Innihald: 100% lífrænn hör
Vigt: 50 gr.
Metralengd: u.þ.b. 175 metrar
Prjónastærð: 3 mm
Prjónfesta: 26 lykkjur
Grófleikaflokkur: 1 - fingering
Þvottaleiðbeiningar: Handþvottur
Framleiðsluland: Ítalía