Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Uppskriftin er á íslensku.
Jarma barnapeysa
JARMA barnapeysa er hluti af JARMA línunni frá MeMe Knitting. Peysan er prjónuð í hring frá hálsmáli með laskaútaukningum. Einföld og einstaklega fljótprjónuð peysa. Skemmtileg 90‘s tilfinning yfir þessari krulluðu og fallegu peysu.
Stærð |
Ummál |
Garn (Scout/Bouclé)* |
3-6 mánaða |
53 cm |
100 g / 50 g |
6-9 mánaða |
56 cm |
100 g / 50 g |
9-12 mánaða |
61 cm |
100 g / 50 g |
1-2 ára |
66 cm |
200 g / 100 g |
2-4 ára |
69 cm |
200 g / 100 g |
4-6 ára |
75 cm |
200 g / 100 g |
6-8 ára |
80 cm |
200 g / 100 g |
8-10 ára |
85 cm |
300 g / 150 g |
10-12 ára |
91 cm |
300 g / 150 g |
*Athugið að um áætlað magn af garni er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf. Miðað er við Scout og Alpaka Bouclé.
GARN
Tveir þræðir prjónaðir saman: Scout frá Kelbourne Woolens (100g/250m) eða Bébé Soft wash frá Kremke (50g/140m) eða Semilla GOTS frá BC Garn (50g/160m) og Alpaka Bouclé frá Kremke (50 g/250 m)
ÞAÐ SEM ÞARF
- 5,5 mm hringprjón / 40 cm og 60 cm
- 6,0 mm hringprjón / 40 cm og 60 cm
- 5,5 mm sokkaprjóna
- 6,0 mm sokkaprjóna
- Prjónamerki
PRJÓNFESTA
10 cm = 15 lykkjur sléttprjón