Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

Kósýgalli barnabuxur - uppskrift

1.100 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Uppskriftin er á íslensku.

Kósýgalli - buxur

Buxurnar eru prjónaðar með sléttu prjóni, ofan frá og niður og í hring. Sniðið á buxunum er þröngt og þær eru hugsaðar sem leggings buxur. Hægt er að fara upp um stærð ef þið viljið hafa þær víðari. #kósýgalli

Efni
Merino Baby frá Katia.
Einnig hægt að nota
- Mini Soft eða VIP frá Lana Gatto.

Stærðir og magn af garni

Stærð Magn
Nýburi 50 g
3-6 mán 100 g
6-12 mán 100 g
1-2 ára 100 g
2-4 ára 100 g
4-6 ára 150 g
6-8 ára 200 g


Það sem þarf
- Hringprjónn nr. 3.5 (40 cm langur)
- Sokkaprjónar nr. 3.5 (fyrir skálmar og stroff á skálm- um)
- Nál til frágangs
- Prjónamerki

Lengd á skálmum frá klofi
Nýburi: 16 cm
3-6 mán: 20 cm
6-12 mán: 26 cm
1-2 ára: 31 cm
2-4 ára: 38 cm
4-6 ára: 43 cm
6-8 ára: 49 cm

Lengd á buxum, frá streng og niður
Nýburi: 30 cm
3-6 mán: 36 cm
6-12 mán: 44 cm
1-2 ára: 51 cm
2-4 ára: 62 cm
4-6 ára: 70 cm
6-8 ára: 79 cm

Ummál um mitti
Nýburi: 40 cm
3-6 mán: 43 cm
6-12 mán: 45 cm
1-2 ára: 47 cm
2-4 ára: 50 cm
4-6 ára: 55 cm
6-8 ára: 60 cm

Prjónfestan í þessum buxum er sú að 26 lykkjur á prjóna nr. 3,5 gera 10 cm með því að nota Baby frá Katia. 

sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista