Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Uppskriftin er á íslensku.
Kría fullorðinspeysa
KRÍA fullorðinspeysa er hluti af KRÍA línunni frá MeMe Knitting. Peysan er prjónuð ofan frá hálsmáli þar sem byrjað er á háum og góðum rúllukraga. Stuttar umferðir eru gerðar til þess að móta hálsmálið. Mynstur fylgir laskaútaukningum á berustykki og er látið leiðast niður bolinn. Fyrir byrjendur er hægt að sleppa stuttum umferðum í hálsmáli.
Stærð |
Ummál peysu |
Garn* |
XXS |
90 cm |
350 grömm |
XS |
95 cm |
400 grömm |
S |
99 cm |
400 grömm |
M |
105 cm |
450 grömm |
L |
110 cm |
450 grömm |
XL |
116 cm |
500 grömm |
XXL |
126 cm |
550 grömm |
*Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf. Miðað er við Scout frá Kelbourne Woolens.
GARN
Scout frá Kelbourne Woolens (sýnt á mynd) (100g/250m) eða Bébé Soft Wash frá Kremke(50g/140m) eða Double Sunday frá Sandnes (50g/108m)
ÞAÐ SEM ÞARF
- 4,0 mm hringprjónar - 40 og 60 cm
- 3,5 mm hringprjónar – 40 og 60 cm
- 4,0 mm sokkaprjónar
- 3,5 mm sokkaprjónar
- Prjónamerki
PRJÓNFESTA
10 cm = 21 lykkjur sléttprjón