Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Uppskriftin er á íslensku.
Maísól barnapeysa
Peysan er prjónuð ofan frá og niður og í hring.
Efni:
Katia Merino 100%
Hvað þarf mikið af garni miðað við stærð:
6-12 mánaða: 200gr (4 dokkur)
1-2 ára: 250gr (5 dokkur)
2-4 ára: 250gr (5 dokkur)
4-6 ára: 300gr (6 dokkur)
6-8 ára: 300-350gr (6-7 dokkur)
8-10 ára: 350-400gr (7-8 dokkur)
ATH að uppgefið magn af garni er einungis viðmið þar sem við prjónum öll misfast/-laust.
Það sem þarf:
- hringprjónar nr.4 (40 og 60/80 sm)
- sokkaprjónar nr. 4
- nál til frágangs
- prjónamerki
Ummál á búk (ca):
6-12 mánaða: 60 sm
1-2 ára: 65 sm
2-4 ára: 70 sm
4-6 ára: 75 sm
6-8 ára: 80 sm
8-10 ára: 85 sm
Lengd á búk, frá handakrika:
6-12 mánaða: 20 sm
1-2 ára: 24 sm
2-4 ára: 28 sm
4-6 ára: 32 sm
6-8 ára: 35 sm
8-10 ára: 39 sm
Lengd á ermum (með stroffi):
6-12 mánaða: 19 sm
1-2 ára: 24 sm
2-4 ára: 28 sm
4-6 ára: 31 sm
6-8 ára: 34 sm
8-10 ára: 37 sm
Prjónfesta
23 lykkjur og 30 umf. á prj. nr. 4 = 10 sm