Pinkulitlir nálapúðar frá japanska merkinu Cohana. Vörur frá Cohana eru í hæsta gæðaflokki, handgerðar af sérfræðingum á sínu sviði í mismunandi héröðum í Japan.
Nálapúðarnir eru í litlu boxi úr sýprus viði sem er innblásið af Masu bollum. Masu bolla eiga sér 1.300 ára sögu í Japan og hafa verið notaðir við hátíðleg tilefni undir japanska drykkinn sake. Viðarboxin eru gerð af handverksmeisturum í fyrirtækinu Ohashi Ryoki en þeir sérhæfa sig í gerð Masu bolla og annarra tréverka gerð úr hinoki sýprus viði. Boxið eru einungis 15 mm að stærð.
Efnið sem notað er í nálapúðana sjálfa er úr hör sem er framleiddur í borginni Hamamatsu. Einnig fylgir með títuprjónn sem er búinn til í Glass studio Kinari í Osaka.
Nálapúðarnir koma í fallegri gjafapakkningu og er tilvalin gjöf fyrir allt handavinnufólk.