Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

Mohair draumur fullorðinspeysa - uppskrift

1.200 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Mohair draumur

Peysan er prjónuð ofan frá og niður og í hring með laskútaukningu. Í peysunni er þrefaldur þráður af Silk Mohair. Það gefur okkur möguleikann á því að hafa fleiri enn einn lit af Mohair. Peysan er ætluð sem mittispeysa og berustykkið er langt. En það er auðvitað hægt að lengja bolinn.

Efni
Angel by Permin
 eða Silk Mohair frá Lana Gatto (þrefaldur þráður)
- Litir og garn á mynd: Angel by Permin nr. 884173, 884154 og 884102.

Stærðir og magn af garni
XS: 175 g (1470 m)
S: 200 g (1680 m)
M: 200 g (1680 m)
L: 225 g (1890 m)
XL: 225 g (1890 m)
XXL: 250 g (2100 m)
ATH að uppgefið magn af garni er einungis viðmið þar sem við prjónum öll misfast/- laust.

Það sem þarf
Hringprjónar nr. 6 (40, 80 og 100/120 cm langir)
Hringprjónar nr. 5.5 (40 og 80/100 cm langir)
Sokkaprjónar nr. 5.5
Nál til frágangs
Prjónamerki (9 stk af hring­laga merkjum sem hægt er að setja upp á prjóninn)

Lengd bolur, frá handvegi
XS: 24 cm
S: 25 cm
M: 26 cm
L: 28 cm
XL: 29 cm
XXL: 30 cm

Ummál bolur
XS: 100 cm
S: 105 cm
M: 110 cm
L: 115 cm
XL: 120 cm
XXL: 125 cm

Lengd ermi, frá handvegi
XS: 37 cm
S: 38 cm
M: 39 cm
L: 40 cm
XL: 41 cm
XXL: 42 cm

Ummál ermi
XS: 32,5 cm
S: 35 cm
M: 37,5 cm
L: 39 cm
XL: 41,5 cm
XXL: 43,5 cm

Prjónfestan í þessari peysu er sú að 16 lykkjur á prjóna nr. 6 gera 10 cm.

 


sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista