Knitting for Olive No Waste Wool er sjálfbært ullargarn búið til úr 50% endurunninni ull og 50% extrafine merino ull sem er rekjanleg.
Ullin er mjög mjúk og með fallega áferð.
Endurunna ullin er búin til úr því sem til fellur við framleiðslu á öðru ullargarni. Henni er síðan blandað við merino ullina og búinn til nýr þráður. Með þessum hætti eru afgangar nýttir sem annars yrðu hent.
50% merino ullin gerir það að verkum að garnið verður sterkara.
Garnið er framleitt á Ítalíu og er með OEKO-tex standard 100 vottun, sem þýðir að það er framleitt með umhverfisvænum hætti og er alveg laust við skaðleg efni.
Innihald: 50% endurunnin ull, 50% extra fine merino ull
Vigt: 50 g
Metralengd: u.þ.b. 225 metrar
Prjónastærð: 3,0 mm
Prjónfesta: 28 lykkjur
Grófleikaflokkur: 1 - fingering
Þvottaleiðbeiningar: Handþvottur
Framleiðsluland: Ítalía