Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Uppskriftin er á íslensku.
Ósk sumarblússa
ÓSK sumarblússa er hluti af ÓSK línunni frá MeMe Knitting. Blússan er prjónuð ofan frá með gata laskaútaukningu og fallegu gatamynstri að framan. Blússan er gerð síðari að aftan gert með stuttum umferðum sem gefur henni sérstaklega skemmtilegan svip ásamt smá púffi í ermum.
Stærðir |
Ummál bols |
Garn* |
6-9 mánaða |
55 |
150 gr |
9-12 mánaða |
57 |
150 gr |
1-2 ára |
59 |
200 gr |
2-4 ára |
61 |
250 gr |
4-6 ára |
66 |
300 gr |
*Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf. Miðað við Dale Lerke.
GARN TILLÖGUR
Dale Lerke (sýnt á mynd), Kelbourne Woolens Scouteða Kremke Morning Salutation Vegan
ÞAÐ SEM ÞARF
- 4,0 mm hringprjónn (40 og 60 cm)
- 4,0 mm sokkaprjóna
- 3,5 mm sokkaprjóna
- Prjónamerki
PRJÓNFESTA
10 cm = 22 lykkjur sléttprjón