Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Uppskriftin er á íslensku.
Skel barnapeysa
SKEL barnapeysa er prjónuð ofan frá hálsmáli með fallegu gatamynstri á berustykki.
Stærð |
Ummál peysu |
Garn* |
9-12 mánaða |
57 cm |
200 g |
1-2 ára |
61 cm |
250 g |
2-4 ára |
67 cm |
300 g |
4-6 ára |
72 cm |
350 g |
6-8 ára |
77 cm |
400 g |
8-10 ára |
81 cm |
450 g |
10-12 ára |
86 cm |
500 g |
*Athugið að um áætlað magn af garni er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf. Miðað er við Semilla Grosso frá BC Garn.
GARN:
Semilla Grosso frá BC Garn (50 g/80 m) eða Germantown frá Kelbourne Woolens (100 g/200 m) eða Vegan Cashmere frá Kremke (50 g/95 m) eða Northern Lights frá BC Garn (100g/200m)
ÞAÐ SEM ÞARF:
-
4,5 mm hringprjóna (40 og 60 cm) og sokkaprjóna
-
5,0 mm hringprjóna (40 og 60 cm) og sokkaprjóna
-
Prjónamerki
-
Nál fyrir frágang
PRJÓNFESTA:
18 lykkjur og 24 umferðir = 10x10 cm