Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

Skuggi barnapeysa - stök uppskrift

1.200 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Uppskriftin er á íslensku.

Skuggi barnapeysa

Peysan er prjónuð ofan frá og niður, í hring með útaukningu í berustykki. Aukið er út samkvæmt skrefum í kafla um berustykki. 

Stærðir og magn af garni
6-12 mán: 200 gr
1-2 ára: 250 gr
2-4 ára: 300 gr
4-6 ára: 400 gr
6-8 ára: 500 gr
8-12 ára: 600 gr

ATH að uppgefið magn af garni er einungis viðmið þar sem við prjónum öll misfast/-laust.

Það sem þarf
- Hringprjónar nr. 6, 40 og 60/80/100 sm (fer eftir stærð peysu).
- Hringprjónar nr. 5.5, 60/80 sm (fyrir stroff á bol)
- Sokkaprjónar nr. 6 (fyrir ermar)
- Sokkaprjónar nr. 5.5 (fyrir stroff á ermi)
- Nál til frágangs

Lengd á bol, frá handvegi, með stroffi
6-12 mán: 19 sm
1-2 ára: 20 sm
2-4 ára: 26 sm
4-6 ára: 29 sm
6-8 ára: 35 sm
8-12 ára: 38 sm

Ummál á bol
6-12 mán: 62 sm
1-2 ára: 67 sm
2-4 ára: 73 sm
4-6 ára: 80 sm
6-8 ára: 84 sm
8-12 ára: 88 sm

Lengd á ermum frá handvegi, með stroffi
6-12 mán: 18 sm
1-2 ára: 21 sm
2-4 ára: 27 sm
4-6 ára: 30 sm
6-8 ára: 33 sm
8-12 ára: 37 sm

Ummál á ermum
6-12 mán: 21 sm
1-2 ára: 23 sm
2-4 ára: 25 sm
4-6 ára: 26 sm
6-8 ára: 27 sm
8-12 ára: 29 sm

Prjónfestan í þessari peysu er sú að 16 lykkjur á prjóna nr. 6 gera 10 sm með því að nota Merino Aran frá Katia.

sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista