Vegna endurbóta liggur vefverslun tímabundið niðri.

Þytur barnapeysa - stök uppskrift

1.100 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Uppskriftin er á íslensku.

Þytur barnapeysa

Stundum þarf ekki að flækja hlutina með skrauti og krúsidúllum. Þytur er stílhrein peysa, prjónuð með mohair-garni sem gerir hana einstaklega mjúka og notalega. Hún var hönnuð með það í huga að vera eilítið í yfirstærð og þar af leiðandi stækkar barnið ekki á örfáum klukkutímum upp úr peysunni. 

Peysan er prjónuð ofan frá og niður, í hring, með sléttu prjóni og laskaútaukningu. #þyturpeysa 

 Efni
- Merino 100% frá Katia eða Feeling frá Lana Gatto og 
- Angel by Permin eða Silk Mohair frá Lana Gatto eða 50 Mohair Shades frá Katia.

Stærð Merino 100% Mohair
1-2 ára 250 g 75 g
2-4 ára 300 g 75 g 
4-6 ára 350 g 100 g
6-8 ára 350 g 100 g
8-12 ára 450 g 125 g


Það sem þarf
- Hringprjónn nr. 4.5 - 40 cm í hálsmál
- Hringprjónar nr. 4.5 - 40, 60 og 80 cm í bol
- Hringprjónn nr 4.0 - 60 cm í stroff á bol
- Sokkaprjónar nr. 4.5 í ermar
- Sokkaprjónar nr. 4.0 í stroff á ermum

Mál
Lengd á bol, frá handvegi, með stroffi
1-2 ára: 20 cm
2-4 ára: 24 cm
4-6 ára: 28 cm
6-8 ára: 32 cm
8-12 ára: 36 cm

Ummál á bol
1-2 ára: 70 cm
2-4 ára: 75 cm
4-6 ára: 80 cm
6-8 ára: 85 cm
8-12 ára: 90 cm

Lengd á ermum frá handvegi, með stroffi
1-2 ára: 18 cm
2-4 ára: 22 cm
4-6 ára: 26 cm
6-8 ára: 30 cm
8-12 ára: 34 cm

Ummál á ermum
1-2 ára: 22 cm
2-4 ára: 24 cm
4-6 ára: 26 cm
6-8 ára: 29 cm
8-12 ára: 31 cm

Prjónfestan í þessari peysu er sú að 20 lykkjur á prjóna nr. 4,5 gera 10 cm með því að nota einn þráð af Merino 100% og einn þráð af mohair.

sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista