Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Uppskriftin er á íslensku.
Vík barnapeysa
VÍK barnapeysa er hluti af VÍK línunni frá MeMe Knitting. Peysan er prjónuð í hring frá hálsmáli með laskaútaukningum.. Einföld en falleg blanda af sléttu- og perluprjóni.
Stærð |
Ummál |
Garn* |
6-12 mánaða |
57 cm |
200 grömm |
1-2 ára |
62 cm |
200 grömm |
2-4 ára |
67 cm |
250 grömm |
4-6 ára |
71 cm |
350 grömm |
6-8 ára |
76 cm |
350 grömm |
8-10 ára |
81 cm |
400 grömm |
*Athugið að um áætlað magn af garni er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf. Miðað er við Double Sunday frá Sandnes Garn.
GARN
Double Sunday frá Sandnes Garn (50 g/108 m) (sýnt í litnum Ballet Shoes), Scout frá Kelbourne Woolens (100 g/250 m) eða Babyalpaka frá Kremke (50 g/100 m)
ÞAÐ SEM ÞARF
- 4,5 mm hringprjón / 40 cm
- 4,0 mm hringprjón / 40 cm
- 4,5 mm sokkaprjóna
- 4,0 mm sokkaprjóna
- Prjónamerki
PRJÓNFESTA
10 cm = 21 lykkjur mynsturprjón