Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

VÖK fullorðinspeysa - stök uppskrift

1.200 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Uppskriftin er á íslensku.

VÖK fullorðins

VÖK peysa er prjónuð ofan frá og niður og í hring.
Mynstur er prjónað í peysuna fyrir miðju að aftan, alla leið niður bakið og að stroffi. Laskaútaukningin er með gatamynstri í annarri hvorri útaukningarumferð

Efni
Katia Merino Aran 
Katia Merino Aran Natur

Stærðir og magn af garni
XS: 500 gr
S: 500 gr
M: 600 gr
L: 600 gr
XL: 700 gr
XXL: 800 gr

Ummál á búk
XS: 98 sm
S: 102 sm
M: 108 sm
L: 114 sm
XL: 120 sm
XXL: 126 sm

Lengd á búk upp að handvegi (með stroffi)
XS: 35 sm
S: 37 sm
M:39 sm
L: 43 sm
XL: 45 sm
XXL: 49 sm

Ummál á ermum
XS: 37 sm
S: 39 sm
M: 42 sm
L: 45 sm
XL: 47 sm
XXL: 50 sm

Lengd á ermum (frá handvegi, með stroffi)
XS: 35 sm
S: 37 sm
M: 39 sm
L: 43 sm
XL: 45 sm
XXL: 49 sm

Það sem þarf
- hringprjónar nr. 5 eða nr. 6 (40 og 80 sm)
- sokkaprjónar nr. 5 eða nr. 6
- nál til frágangs
- prjónamerki

Prjónfestan í þessari peysu er sú að 16 lykkjur á prjóna nr. 5-6 gera 10 sm. 

 

sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista