Útsaumspakkning
Útsaumspakkningin Waves eftir Bargello systurnar hefur reynst vinsæl fyrir þá sem hafa gaman af því að nota útsaum sem eins konar hugleiðslu, þar sem mynstrið er endurtekið aftur og aftur og getur því haft róandi áhrif á þann sem saumar út.
Með fylgir myndband með leiðbeiningum sem hægt er að nálgast með QR kóðanum á pakkningunni.
hönnuður: The Bargello sisters
stærð: 40 x 40 cm
efni: strammi
garn: appletons ullargarn
Aðferð: Slanted Bargello stitch, úttalið.
Innifalið í útsaumspakkningunni er strammi, útsaumsgarn, nál og leiðbeiningar. Athugið að púðabak fylgir ekki með.