Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Uppskriftin er á íslensku.
Yndi ungbarnasett
YNDI ungbarnasett samanstendur af fallegri hnepptri peysu með gatamynstri að framan en slétt að öðru leyti, samfellu (romper) með mynstri að aftan og klassískri hjálmhúfu. Allt settið er prjónað neðan frá.
Stærð |
Ummál peysu |
Garn í peysu* |
Ummál samfellu |
Garn í samfellu* |
Garn í húfu* |
0-3 mánaða |
48 cm |
150 gr |
38 cm |
100 gr |
50 gr |
3-6 mánaða |
51 cm |
150 gr |
42 cm |
100 gr |
50 gr |
6-9 mánaða |
53 cm |
150 gr |
46 cm |
100 gr |
50 gr |
9-12 mánaða |
57 cm |
200 gr |
49 cm |
100 gr |
50 gr |
12-18 mánaða |
59 cm |
200 gr |
53 cm |
100 gr |
100 gr |
18-24 mánaða |
62 cm |
200 gr |
56 cm |
100 gr |
100 gr |
*Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf.
GARN
Scout frá Kelbourne Woolens eða Bébé Soft Wash frá Kremke
ÞAÐ SEM ÞARF
4,0 mm hringprjón
3,5 mm hringprjón
4,0 mm sokkaprjóna
3,5 mm sokkaprjóna
Prjónamerki
Tölur
PRJÓNFESTA
10 cm = 22 lykkjur sléttprjón