Uppfærð útgáfa af hinni klassísku Edward's Menagerie bók.
Aðeins tveimur vikum fyrir fæðingardag litla Edwards tók verðandi mamman Kerry Lord upp heklunál í fyrsta skipti og þá hófst ný þráhyggja hjá henni. Á næstu 12 mánuðum stækkaði safn hekldýra viku eftir viku þar til Edward's Menagerie var tilbúið, og fyrsta bókin kom út árið 2014. Nú, 10 árum síðar, hefur bókin selst í yfir 250 þúsund eintökum um heim allan. Á meðan hefur safnið af hekldýrum stækkað og verið betrumbætt, og því hefur verið gefin út ný útgáfa af klassísku bókinni, með uppfærðum uppskriftum og glænýjum dýrum.
Þessi sætu dýr eru gerð með einföldum heklaðferðum og skref-fyrir-skref leiðbeiningar gera algjörum byrjendum kleift að byrja strax að hekla. Hvert dýr hefur sitt mynstur þar sem þú getur skipt um stærð á heklunál og garni til að búa til fjórar mismunandi stærðir.
Höfundur: Kerry Lord
Tungumál: enska
Aðferð: hekl
Blaðsíður: 144
Útgáfuár: 2024
Gerð: mjúkspjalda