Small knits - casual and chic Japanese style accessories eru uppskriftir af stílhreinum, nútímalegum fylgihlutum með japönsku yfirbragði. Með nútímalegri nálgun á klassísk prjónamunstur glæðir bókin nýju lífi í annars klassísk mynstur af húfum, vettlingum og treflum. Þessir fylgihlutir munu passa vel í nánast hvaða fataskáp sem er.
Í þessari bók finnur þú leiðbeiningar og mynstir 19 heillandi uppskriftum, þar á meðal af norrænum selbu vettlingum og grifflum, alpahúfu, klútum með houndstooth mynstri, grifflur og húfum með fair isle mynstri, sokkum í herringbone mynstri, kaðlahúfum og margt fleira.
Leiðbeiningar, skýringarmyndir og prjónatöflur í japönskum stíl hjálpa þér í gegnum hvert verkefni frá upphafi til enda. Kafli um prjónatækni sýnir hvernig á að framkvæma ýmsar aðferðir sem notaðir eru í bókinni.
Yoko Hatta er hönnuðurinn á bakvið prjónastofuna Kazeboko. Hún er afkastamikil listakona sem hefur skrifað margar prjónabækur og verk hennar eru þekkt fyrir að bæta nútímalegum stíl við klassískar flíkur.
Tungumál: enska
Bls.: 80
Höfundur: Yoko Hatta
Útgefandi: Tuttle
Úgáfuár: 2019